Foreldrafélag Hveragerðisbæjar
Heimili og skóli
15.10.2007 17:56:58 / felag

Samantekt aðalfundar Foreldrafélagsins 11.október 2007

Samantekt aðalfundar Foreldrafélagsins 11. október 2007. 19 manns voru mættir á fundinn.Sigurbjörg Sara fráfarandi formaður setti fundinn síðan var Pamela Morrison kosin fundarstjóri og Jóhanna Sveinsdóttir kosin fundarritari.Pamela bar upp ósk um að fá að bera fram lagabreytingu á fundinum þar sem láðst hafði að senda boð um það með auglýsingu um aðalfundinn og var það samþykkt.Pétur Pétursson las upp fundargerð síðasta aðalfundar og var hún samþykkt.Sigurbjörg Sara las upp skýrslu stjórnar fyrir sl. starfsár og var hún samþykkt.Pétur Pétursson las svo upp reikninga félagsins fyrir síðasta starfsár og voru þeir samþykktir.Pamela las svo upp tillögu að lagabreytingum í lögum félagsins og voru þær samþykktar með smá viðbót.Síðan var kosning tveggja skoðunarmanna fyrir félagið og voru þau Bryndís Sigurðardóttir og Guðmundur Þ. Guðjónsson endurkosin.Þá var kosning í stjórn félagsins þau sem hættu störfum voru Pétur Pétursson og Berglind Eva Arnardóttir. Þorvaldur Snorrason og Stefán Magnússon voru tilnefndir og kosnir. Þá bauð eitt foreldri sig fram á fundinum, Dóra Ásgeirsdóttir og var hún kosin. Tveir varamenn buðu sig fram, þær Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir og voru þær kosnar. Lilja Rós Sveinsdóttir hélt áfram.Sólveig Ingibergsdóttir las upp skýrslu Foreldraráðs og kynnti starfsemina, einnig var kosið í Foreldraráðið. Í stað Ingibjargar Sverrisdóttur og Sólveigar Ingibergsdóttur voru þeir Albert Sveinsson og Ronald Guðnason kosnir.Tillaga um innheimtu á félagsgjöldum í gegnum KB banka var borin upp fyrir fundinn og var hún samþykkt.Þá var orðið laust og tók Albert Sveinsson til máls og talaði um Foreldrafélag í Kópavogi. Einnig tóku þau Páll Léó og Helga aðstoðarskólastjórar til máls og töluðu m.a. um hve mikilvægt sé að foreldrar séu virkir í skólastarfinu.Fundi slitið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 19:17:05 / felag

Vefurinn Opnaður.

Velkomin á nýju heimasíðu foreldrafélags Grunnskóla Hveragerðis. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært um að nýta sér þær upplýsingar sem hér munu koma.

-Stjórn Foreldrafélagsins


» 2 hafa sagt sína skoðun